Íslenska tónlistarsenan er óvenjulega samtengd. Sérstaklega hjá ungu popp- og rapptónlistarfólki.

Tónlistarfólkið sér hag sinn í að vinna saman og lyfta hvoru öðru upp, frekar en vera endilega í keppni hvort við annað. Gestaframlög á lögum tónlistarfólksins spila í þessu samhengi algjört lykilhlutverk.

Þegar kom að því að halda upp á fimm ára afmæli Auto, (nánast) eina skemmtistaðarins í Reykjavík sem bókar lifandi flutning tónlistarfólks í þessari senu, var markmiðið að sýna beinlínis fram á hversu mikil téð samtenging er. Auk þess auðvitað að gera eitthvað stórt sem hefði aldrei áður verið gert á skemmtistað í Reykjavík.

Þannig fæddist hugmyndin um „The Setlist“, heila tónleika sem yrðu viðstöðulaust boðhlaup tónlistarfólks og gestasöngvara.

Auto 5 ára

Í auglýsingu fyrir viðburðinn var klúbbnum breytt í fréttaver og var Berglind Festival, sem fer fyrir Fréttum vikunnar í þættinum Vikan með Gísla Marteini á RÚV, fengin til að flytja „afar áríðandi fréttir“ um viðburðinn.

Í tilkynningunni þylur Berglind upp nöfn rúmlega 20 tónlistarfólks sem myndu fram koma í fimm ára afmæli Auto. Þetta gerir hún rólega og yfirvegað, eins og ekkert sé í raun merkilegt við þetta allt saman.

Ólafur framleiddi auglýsinguna, skrifaði hana og leikstýrði, auk þess að hanna sérstakt fimm ára afmælismerki Auto. Hlynur Hólm Hauksson skaut og klippti auglýsinguna. Young Nazareth færði hið ódauðlega fréttastef RÚV í dansvænna horf.

Viðburðurinn sjálfur var skipulagður af Ólafi og Sigurði Stefáni Bjarnasyni, rekstrarstjóra Auto.

Ljósmyndir af viðburðinum eru eftir Þóru Ólafs.

Previous
Previous

Auto Orka

Next
Next

Auto