Í september 2026 kom út Alda Gel Moisturiser, önnur varan í Öldu-vörulínu íslenska húðvörumerkisins Dóttir Skin.
Um þetta þurfti að hafa hátt og gekk Ólafur tímabundið til liðs við Helgu Sigrúnu Hermannsdóttur, stofnanda og framkvæmdastjóra Dóttir Skin, til að koma nýju vörunni á markað.
Hlutverkin voru bæði ráðgefandi og skapandi. Ólafur kom að gerð markaðsdagatals og „roll-out“ strategíu fyrir nýju vöruna. Auk þess framleiddi hann allt mynd- og markaðsefni fyrir nýju vöruna.
Dóttir Skin — Alda Launch
Þar ber að nefna stúdíómyndatöku fyrir herferðina með Berglindi Öldu, leikkonu, vörumyndatöku þar sem ljósmyndir af öllum vörum DS voru endurnýjaðar fyrir heildrænt útlit vefverslunar, ljósmyndir frá kynningarviðburði fyrir vöruna og hönnun á auglýsingaefni fyrir OOH miðla í kynningarvikunni.
Árangurinn leyndi sér ekki. 728 manns skráðu sig á biðlista eftir forsöluaðgangi að vörunni. 293 eintök seldust á örfáum forsöludögum í vefverslun DS. Þegar þetta er skrifað (8.10.26), viku eftir almenna útgáfu eru um 1.000 stk. seld.