Enginn

Enginn er tónlistarverkefni sem Ólafur gaf frá sér í október 2020. Enginn er heildstætt konsept sem nær yfir bæði hljóð- og myndheim.

Ásamt Ólafi komu að tónlistinni Einar Stefánsson, Margréti Rán Magnúsdóttir og Magnús Jóhann Ragnarsson.

Ímyndarsköpun, mörkun, hönnun og myndbandagerð var unnin af Þorgeiri K. Blöndal, Jakobi Hermannssyni og Ólafi.

Enginn EP kom út á veraldlegu formi í 40 númeruðum eintökum. Hönnun umbúðanna dró innblástur frá leikfangafígúrum frá níunda áratug síðustu aldar.

Ólafur, með aðstoð frá Pétri Geir Magnússyni, handsteypti hverja og eina fígúru í sílíkonmót með resin-plasti sem mótað var eftir 3D prentaðri frumgerð. Umbúðirnar voru settar saman í höndum.

Previous
Previous

Auto

Next
Next

Nína