Ólafur er einn stofnenda barsins Nínu á Hverfisgötu 20 í Reykjavík. Nína opnaði í desember 2024 og er ætlað að brúa bilið á milli enska boltans og kokteila með stjörnuljósum. Einkunnarorð Nínu eru „Alltaf vín, stundum sport.“
Grafíski hönnuðurinn Þorgeir K. Blöndal hannaði merki og ásýnd Nínu, en Ólafur vann náið með honum í hlutverki listræns stjórnanda. Frá opnun Nínu hefur Ólafur haldið ásýnd vörumerkisins við og séð um markaðsstarf.
Myndlistamaðurinn Pétur Geir Magnússon glæðir vörumerki Nínu lífi með teikningum.