Húrra Reykjavík

Ólafur var fyrsti starfsmaður herrafataverslunarinnar Húrra Reykjavík sem opnaði í september 2014. Þegar kvennaverslun Húrra opnaði haustið 2016 varð Ólafur markaðsstjóri verslananna og gengdi hann því starfi út árið 2019.

5 ára afmæli Húrra var fagnað haustið 2019 með því að gefa út einstaklega veglega 350 blaðsíðna harðspjalda ljósmyndabók. Bókin er samansafn myndaþátta og annars markaðsefnis sem Húrra gaf frá sér fyrstu 5 árin í rekstri.

Í bókinni er fjöldi tískuljósmynda eftir marga hæfileikaríkustu ljósmyndara Íslands og eru síður hennar prýddar ótal kunnulegum andlitum úr íslensku menningarlífi.

Ólafur var markaðsstjóri Húrra bróðurpart þess tímabils sem bókin nær yfir. Hann hafði umsjón með framleiðslu og listrænni stjórnun á langflestum verkefnum sem finna má í henni og gegndi einnig hlutverki ljósmyndara í mörgum þeirra.

Framleiðsla bókarinnar og ritstjórn var í höndum Ólafs. Bókina sjálfa hannaði Þorgeir K. Blöndal.

Previous
Previous

Nína

Next
Next

Epicbet