Epicbet

Epicbet er íþróttaveðmálasíða sem fór í loftið sumarið 2024. Epicbet starfar á alþjóðlegum markaði en hefur frá byrjun verið sérlega áberandi á Íslandi, enda er eignarhald síðunnar að hluta til íslenskt.

Hönnun vörumerkis og ásýndar Epicbet var samstarfsverkefni Ólafs og grafíska- og hreyfihönnuðarins Jakobs Hermannssonar.

Þeir skiluðu frá sér fullbúnum hönnunarstaðli sem inniheldur meðal annars sérteiknaða leturgerð og tölustafi.

Fyrirtækið á bakvið Epicbet og starfsmenn þess byggja á sigurvegarakúltúr. Fyrirtækið lítur á sig sem íþróttalið með markmið og það markmið er sigur.

Þetta var útgangspunkturinn þegar kom að því að hanna vörumerki Epicbet — bæði hugmyndafræðilega og bókstaflega. Vörumerkið átti að endurspegla hugarfar sigurvegara, liðsanda og dirfsku – eiginleika teymisins sem stendur vörumerkinu að baki, en átti líka að hafa mjög skýra skírskotun í íþróttir, bæði hönnunarlega og fagurfræðilega.

Markmiðið er að notendur upplifi sig sem hluta sigurliðsins og stefni saman að epískum sigrum.

Merki Epicbet hefur mikla vigt, bókstaflega og hugmyndafræðilega, og er á sama tíma bæði nútímalegt og hreinlegt. Merkið er þungamiðja Epicbet, þykkt og sterkt, og á að standa miðjusett þegar hægt er, líkt og sigurvegarar á palli.

Út frá formum merkisins var einnig hannað myndmerki til stuðnings — til að nota við minni grafískar aðstæður, t.d. app merki og favicon, og til að nota sem grafískt element með ljósmyndum.

Formin voru einnig notuð til að vinna hreyfanleg munstur til að lyfta vörumerkinu og grafískt tölustafakerfi sem líkjast númerum leikmanna í íþróttaliði. Að lokum var leturgerðin Epic Display kláruð til að þjóna sem fyrirsagnaletur í samskiptum Epicbet við heiminn.

Previous
Previous

Húrra Reykjavík

Next
Next

ReSpin