ReSpin
ReSpin er spilavíti á netinu og er í eigu sömu aðila og Epicbet. ReSpin fór í loftið nokkrum mánuðum á undan Epicbet og var því fyrra verkefnið sem Ólafur tók að sér af þessum tveimur.
Hann fékk til liðs við sig grafíska- og hreyfihönnuðinn Jakob Hermannsson til að hanna merki og ásýnd vörumerkisins.
Þeir skiluðu frá sér greinargóðum hönnunarstaðli sem inniheldur nákvæmar reglur um vörumerkið í notkun.
Nafn vefsíðunnar og ReSpin lukkuhjólið, sem er eitt helsta aðdráttarafl hennar, lágu fyrir áður en hönnunarvinnan hófst. Merkið var hannað til að ríma við þessa tvo fasta og til að vekja upp hugrenningatengsl um hraða og spennu, eins fólk upplifir í spilavítum.
ReSpin vildi skera sig sem mest frá samkeppninni í útliti og gefa til kynna með hönnun framúrstefnulega nálgun síðunnar, t.a.m. hvað varðar veðmál með rafmyntum. Litir ReSpin voru valdir út frá þessum forsendum. Fjólublár, sem er alla jafna ekki tengdur við karllæga hluti líkt og fjárhættuspil, er nánast ekki til á þessum markaði og græni liturinn til stuðnings birtist víða í samhengi við rafmyntir.
Ákveðið var að fara hreinlega, látlausa og nútímalega leið hvað varðar týpógrafíu og form, ólíkt flestum samkeppnisaðilum ReSpin sem hafa alla jafna talsvert „háværara“ útlit. Nóg þótti að leikirnir sjálfir sem finna má á síðunni séu litríkir og glysgjarnir.
Með þessari nálgun var markmiðið einnig að byggja traust gagnvart viðskiptavinum með skýrum og vel upp settum ramma utan um spilavítið sjálft og markaðsefni þess út á við. Innihaldið getur verið hávært og spennandi þegar það er byggt á snyrtilegum grunni.